Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 13. ágúst 2017 09:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pep Guardiola: Þetta var alltaf í okkar höndum
Pep Guardiola og Sergio Aguero.
Pep Guardiola og Sergio Aguero.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City var að vonum ánægður með sigur sinna manna í gær.

Þeir mættu þá nýliðum Brighton en það tók Manchester-liðið 70 mínútur að koma boltanum í netið.

„Fyrsti leikurinn á tímabili getur alltaf verið dálítið flókinn, sérstaklega gegn nýliðum með þessa ástríðu og enga pressu á sér."

„Við sáum hvað gerðist hjá Liverpool og Chelsea og við ræddum það, þetta voru óvænt úrslit en svona er enska úrvalsdeildin."

„Allir leikir eru bardagar, en við stjórnuðum leiknum og þetta var alltaf í okkar höndum," sagði Guardiola.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner