Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. ágúst 2018 08:58
Magnús Már Einarsson
Rúnar Alex í liði umferðarinnar í Frakklandi
Frábær um helgina.
Frábær um helgina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Dijon, er í liði umferðarinnar hjá L'Eqiupe í Frakklandi eftir fyrstu umferðina í úrvalsdeildinni þar í landi.

Rúnar Alex átti góðar vörslur í 2-1 útisigir Dijon á Montpellier um helgina.

Hann er í góðum félagsskap í liði umferðarinnar með leikmönnum eins og Adrien Rabiot, Dimitri Payet og Stefan Jovetic.

Rúnar Alex kom til Dijon frá danska félaginu Nordsjælland í sumar en hann er fyrsti íslenski markvörðurinn til að spila leik í einni af fimm stærstu deildum Evrópu.

Hér að neðan má sjá lið umferðarinnar.

Athugasemdir
banner