Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. ágúst 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Samkomulag í höfn á milli Valencia og Atletico
Gameiro kemur frá Atletico Madrid.
Gameiro kemur frá Atletico Madrid.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid og Valencia eru búin að ná samkomulagi um félagaskipti sóknarmannsins Kevin Gameiro.

Hinn 31 árs gamli Gameiro er á leið til Valencia og er sagt að kaupverðið sé 16 milljónir evra. Gameiro mun gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning í dag.

Gameiro mátti fara frá Atletico Madrid eftir að Nikola Kalinic kom þangað í síðustu viku.

Þessi franski sóknarmaður frá frá Sevilla til Atletico fyrir 27 milljónir evra árið 2016. Hann skoraði 11 mörk í 36 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili.

Hann er annar sóknarmaðurinn sem Valencia fær með stuttu millibili en Michy Batshuayi kom þangað á láni frá Chelsea fyrir nokkrum dögum síðan.

Valencia er líka nálægt því að kaupa Goncalo Guedes samkvæmt heimildum ESPN.
Athugasemdir
banner
banner
banner