mán 13. ágúst 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Úrslitaleikur Þórs/KA og Ajax fer fram í dag
Koma svo Þór/KA!
Koma svo Þór/KA!
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Í dag kemur það í ljós hvort Þór/KA fer áfram í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna.

Liðið leikur hreinan úrslitaleik við hollenska stórliðið Ajax um sæti í 32-liða úrslitunum.

Bæði Þór/KA og Ajax eru með sex stig fyrir leik dagsins, en leikurinn hefst klukkan 15:00 að íslenskum tíma.

Alls komast 12 lið áfram úr undanriðlunum. Þau 10 lið sem vinna riðla sína komast áfram ásamt tveimur liðum með bestan árangur í öðru sæti. Tuttugu lið fara beint í 32-liða úrslit. Ajax og Þór/KA eru bæði með 5+ í markatölu en Ajax hefur skorað fleiri mörk og er því fyrir ofan Þór/KA fyrir lokaumferðina. Jafntefli þýðir það að Ajax fer áfram í 32-liða úrslitin.

Þór/KA verður að vinna leikinn en þó liðið vinni ekki er möguleiki á því að það fari áfram með góðan árangur í öðru sæti. Akureyrarliðið ætlar sér samt auðvitað að vinna leikinn og ekkert annað.

Koma svo Þór/KA!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner