Þróttur valtaði yfir Augnablik í kvöld með 7 mörkum gegn einu. Andrea Rut, leikmaður Þróttar, var að vonum ánægð með sigurinn.
Lestu um leikinn: Augnablik 1 - 7 Þróttur R.
"Já ég er mjög sátt, þetta var mjög góður leikur heilt yfir. Mjög gott að halda fyrsta sætinu í deildinni."
"Þetta var erfitt í byrjun, svo komum við okkur inn í leikinn með því að skora fyrsta markið. Þetta datt svo aðeins niður í seinni hálfleik en góður sigur að lokum."
Andrea skoraði frábært mark í fyrri hálfleik. Hvernig upplifði hún markið?
"Já, það er alltaf gaman að skora. Ég er bara ekki með neinn í bakinu svo ég sný mér bara og klára þetta í hornið."
Þá er Andrea komin með 3 mörk í deildinni. Er hún með einhver markmið?
"Nei, ég tek bara einn leik í einu og sé hvernig þetta fer."
Þróttur á leik gegn Aftureldingu í næsta leik en þær töpuðu fyrri leiknum með einu marki en þær stefna á sigur í þetta skiptið.
"Jú, þetta var erfiður leikur síðast en við tökum þær núna."
Viðtalið við Andreu má sjá hér að ofan.
Athugasemdir