Það var heldur betur dramatík í kvöld þegar Celtic og CFR Cluj-Napoca mættust í umspili fyrir Meistaradeildina.
Celtic sem hefur verið í basli með að koma sér í Meistaradeildina í nokkur ár og vandræði þeirra héldu áfram í kvöld.
Það var mark Cluj á 97. mínútu sem gerði út um drauma Celtic um að koma sér í Meistaradeildina í ár.
The Hoops are knocked out of the @ChampionsLeague.#CELCLU #UCL pic.twitter.com/DwEM8i3HTv
— Celtic Football Club (@CelticFC) August 13, 2019
Niel Lennon þjálfari Celtic var allt annað en ánægður eftir leik og lýsti yfir óánægju sinni.
„Við vildum allir Meistaradeildar fótbolta, við getum ekki kennt neinum nema sjálfum okkur um þetta. Við slökkvum á okkur á mikilvægum tímapunktum."
Athugasemdir