þri 13. ágúst 2019 11:50
Elvar Geir Magnússon
Liverpool flýgur til Istanbúl - Lonergan með
Roberto Firmino á John Lennon flugvelli í morgun.
Roberto Firmino á John Lennon flugvelli í morgun.
Mynd: Liverpool
Jurgen Klopp hefur staðfest 23 manna ferðahóp sinn sem mætir Chelsea í leiknum um Ofurbikar Evrópur. Þar mætast sigurvegarar Meistaradeildarinnar og sigurvegarar Evrópudeildarinnar.

Leikurinn fer fram í Istanbúl annað kvöld en Liverpool mætti á Jon Lennon flugvöllinn í morgun og er núna í flugi yfir til Tyrklands.

Með í för er hinn reynslumikli markvörður Andy Lonergan sem mun væntanlega gera skammtímasamning við Liverpool eftir meiðslin hjá Alisson sem verður frá næstu vikur.

Adrian, sem kom í sumarglugganum, fór í markið þegar Alisson þurfti að fara af velli í 4-1 sigurleiknum gegn Norwich síðasta föstudag. Hann mun verja mark Liverpool annað kvöld.

Athygli vakti að Dejan Lovren fór ekki með hópnum til Tyrklands en sagt er að hann sé veikur. Hann hefur verið orðaður við Roma.


Athugasemdir
banner
banner
banner