Fótboltinn er þannig gerður að lífið í honum er ekki alltaf dans á rósum. Bekkjarseta og fall er fylgifiskur íþróttarinnar. Hér má sjá tíu einstaklinga í Pepsi-deild karla í sumar sem hafa átt erfitt tímabil.
Arnar Grétarsson - Stutt en erfitt Pepsi-sumar. Arnar var rekinn eftir tvær umferðir. Ákvörðun sem hefur fengið harða gagnrýni. Blikar hafa lítið sýnt í sumar.
Atli Guðnason - Einn besti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi en framlag hans í sumar hefur verið lítið. Aðeins eitt mark skorað.
Ágúst Gylfason - Fjölnismenn hafa aldrei náð almennilegu flugi í sumar og eru bara stigi frá fallsæti. Deyfð í Grafarvoginum og fjöldi erlendra leikmanna í liðinu skapað umtal.
Finnur Orri Margeirsson - KR-ingar hafa ekki náð sér á strik og Finnur hefur verið langt frá sínu besta í sumar.
Garðar Gunnlaugsson - Dældi inn mörkum á síðasta tímabili en þessi magnaði sóknarmaður hefur verið í djúpri lægð með samherjum sínum í sumar.
Gunnlaugur Jónsson - Skagamenn hafa ekki losnað við falldrauginn í sumar og Inkasso-deildin bíður þeirra. Gulli Jóns steig til hliðar þegar útlitið var orðið kolsvart.
Halldór Orri Björnsson - FH-ingar vonuðust til að Halldór næði að sýna sínar bestu hliðar í nýju umhverfi. Það hefur svo sannarlega ekki gerst og Halldór mikið vermt varamannabekkinn.
Ingvar Kale - Missir sæti sitt í byrjunarliði annað tímabilið í röð. Í fyrra hjá Val og hjá ÍA núna. Er á leið niður með Skagamönnum.
Athugasemdir