Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. september 2019 20:41
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Wolfsburg gerði jafntefli í Düsseldorf
Weghorst gerði jöfnunarmark Wolfsburg.
Weghorst gerði jöfnunarmark Wolfsburg.
Mynd: Getty Images
Fortuna Düsseldorf 1 - 1 Wolfsburg
1-0 Niko Giesselmann ('16)
1-1 Wout Weghorst ('29)

Niko Giesselmann kom Fortuna Düsseldorf yfir gegn Wolfsburg er liðin mættust í fyrsta leik helgarinnar í Þýskalandi.

Giesselmann skoraði eftir fyrirgjöf frá Oliver Fink en gestirnir frá Wolfsburg jöfnuðu stundarfjórðungi síðar.

Wout Weghorst skoraði þá eftir frábæran undirbúning frá Josip Brekalo.

Fyrri hálfleikurinn var jafn en Wolfsburg tók öll völd eftir leikhléð. Vörn heimamanna hélt þó út og lokatölur 1-1.

Düsseldorf er með fjögur stig eftir fjórar umferðir. Wolfsburg er með átta stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner