Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. september 2020 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo búinn að skora rúmlega helming allra marka á árinu
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo verður 36 ára í febrúar en hefur ekki gefið nein merki um að hann sé orðinn of gamall fyrir fótbolta á hæsta stigi.

Hann hefur verið í fantaformi á árinu og búinn að skora rúmlega helming allra marka sem hans lið hafa gert meðan hann er inni á vellinum.

Þegar tölfræðin er skoðuð hefur Ronaldo skorað 28 mörk í 27 leikjum með Juventus og portúgalska landsliðinu á þessu ári. Í þeim leikjum sem hann hefur spilað hafa Juve og Portúgal í heildina skorað 51 mark.

Ronaldo á því 55% allra marka sinna liða á þessu ári en það vekur einnig athygli hversu duglegur hann hefur verið í uppbyggingu sókna og í stoðsendingum.

Ronaldo gekk í raðir Juventus fyrir tveimur árum og kostaði Ítalíumeistarana 100 milljónir evra auk himinhárra launa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner