Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 13. október 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Rauðu djöflarnir heimsækja Anfield
Mynd: Getty Images
Enska Úrvalsdeildin hefur farið afar fjörlega af stað og eru Manchester-liðin með fimm stiga forystu og tuttugu mörk í plús eftir aðeins sjö umferðir.

Áttunda umferð tímabilsins verður spiluð um helgina eftir næstsíðasta landsleikjahléð á árinu. Manchester United opnar helgina með því að heimsækja erkifjendurna fornu í Liverpool á Anfield Road.

Jóhann Berg Guðmundsson verður líklega í hóp Burnley á heimavelli gegn West Ham. Botnlið Crystal Palace fær Englandsmeistara Chelsea í heimsókn, en Palace er ekki enn búið að skora mark.

Manchester City fær Stoke í heimsókn, Swansea tekur á móti Huddersfield og Tottenham á leik við Bournemouth.

Arsenal heimsækir Watford í síðasta leik laugardagsins og þarf sigur til að halda í við toppliðin frá Manchester.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton þurfa heldur betur að rétta úr kútnum og fá kjörið tækifæri til þess þegar þeir heimsækja nýliða Brighton á sunnudaginn. Southampton tekur svo á móti Newcastle, áður en Leicester fær West Brom í heimsókn í mánudagsleiknum.

Laugardagur:
11:30 Liverpool - Man Utd (Stöð 2 Sport)
14:00 Burnley - West Ham
14:00 Crystal Palace - Chelsea (Stöð 2 Sport)
14:00 Man City - Stoke
14:00 Swansea - Huddersfield
14:00 Tottenham - Bournemouth
16:30 Watford - Arsenal (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
12:30 Brighton - Everton (Stöð 2 Sport)
15:00 Southampton - Newcastle (Stöð 2 Sport)

Mánudagur:
19:00 Leicester - West Brom (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner