Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. október 2020 19:15
Aksentije Milisic
Ramsey dregur sig úr velska hópnum vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, leikmaður Juventus, hefur þurft að draga sig úr landsliðshópi Wales vegna meiðsla.

Ramsey mun ekki ferðast með liðinu til Búlgaríu í leik í Þjóðadeildinni. Ramsey spilaði þegar Wales og Írland skildu jöfn 0-0 á sunnudaginn síðasta.

Wales gaf ekkert út um það um hvers konar meiðsli var að ræða. Ramsey hefur spilað 60 leiki fyrir landsliðið og gert í þeim leikjum 16 mörk.

Hann var mikið orðaður burt frá Juventus í sumar en ekkert varð úr því. Hann gekk til liðsins frá Arsenal í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner