Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 13. nóvember 2017 08:00
Elvar Geir Magnússon
Ingvar Jóns: Þjálfarinn mjög hrifinn af Emil
Icelandair
Ingvar á æfingu í Katar.
Ingvar á æfingu í Katar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Jónsson er einn af fjórum markvörðum sem eru í íslenska landsliðshópnum sem er í Katar. Hann spjallaði við Fótbolta.net á æfingu og var fyrst spurður út í nýjasta félagsskapinn í Sandefjord í Noregi.

Emil Pálsson er orðinn samherji Ingvars.

„Þeir hafa haft áhuga á honum í einhvern tíma og spurðu mig út í hann í sumarglugganum og eitthvað fyrir tímabilið. Ég held að hann henti vel í liðið. Þeir vildu fá Íslending inn og þjálfarinn er mjög hrifinn af honum. Ég held að hann passi fullkomlega í liðið okkar," segir Ingvar.

Sandefjord hefur einnig gert tilboð í Hólmbert Aron Friðjónsson og greinilegt að menn eru að horfa til Íslands.

„Íslenska landsliðið er að standa sig vel og það er heillandi að fá íslenska leikmenn núna. Það er stemning fyrir því að fá fleiri Íslendinga þarna."

Sandefjord er í tíunda sæti af sextán liðum nú þegar norska deildin er að klárast og segir Ingvar að menn séu ánægðir með tímabilið.

„Allir fjölmiðlar spáðu okkur falli fyrir tímabilið. Menn höfðu enga trú á okkur sem er skiljanlegt því við töpuðum öllum leikjunum á undirbúningstímabilinu. Þegar tímabilið fór að ganga þó fór þetta að virka. Ég er mjög ánægður með mína frammistöðu, ég hef verið mjög stöðugur yfir allt tímabilið og er mjög ánægður."

Leikið er gegn Katar í vináttulandsleik á morgun þriðjudag en leikurinn hefst klukkan 16:30 að íslenskum tíma.

„Ég vonast eftir því að fá tækifæri en maður verður að sýna því skilning ef aðrir fá tækifæri til að sýna sig, Auðvitað vill maður fá mínútur. Það er gríðarleg samkeppni um að komast til Rússlands, við eigum fullt af góðum markvörðum."

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner