Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. nóvember 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Alisson reynir að vera fullkominn
Mynd: Getty Images
Alisson, markvörður Liverpool, segist leggja hart að sér til að verða fullkominn fyrir liðið.

Alisson varð dýrasti markvörður sögunnar þegar Liverpool keypti hann á 67 milljónir punda frá Roma í sumar.

„Ég kom hingað fyrir hátt verð og fólk reiknar með að ég sé fullkominn. Það er ekki auðvelt en ég reyni það," sagði Alisson.

„Það er of snemmt að segja hvort ég sé sáttur með spilamennsku mína en ég er að reyna að vera fullkominn og vinna í að verða betri."

„Ég er mjög ánægður með skrefið að fara í ensku úrvalsdeildina. Ég legg hart að mér til að hjálpa Liverpool að ná markmiðum sínum og líka brasilíska landsliðinu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner