Harry Redknapp er ekki í starfi í fótboltanum þessa dagana en hann mun næstu vikurnar taka þátt í raunveruleikaþættinum „I'm a Celebrity."
Í þættinum taka þekktir einstaklingar í Bretlandi þátt.
Einstaklingarnir eru settir saman út í skóg í Ástralíu þar sem þeir búa saman og keppast um að verða krýnd kóngur eða drottning frumskógarins.
Í þættinum taka þekktir einstaklingar í Bretlandi þátt.
Einstaklingarnir eru settir saman út í skóg í Ástralíu þar sem þeir búa saman og keppast um að verða krýnd kóngur eða drottning frumskógarins.
„Af hverju ætti ég ekki að gera þetta? Þetta er ævintýri á þessu mkafla í lífi mínu," sagði Harry um þátttöku sína í þættinum.
Hinn 71 árs gamli Harry mætti til Ástralíu í gær en spennandi verður að sjá hvernig honum gengur í þáttunum.
Athugasemdir