Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 13. nóvember 2018 21:08
Ívan Guðjón Baldursson
Joe Cole sannfærði Hazard að koma til Chelsea
Mynd: Getty Images
Joe Cole lagði skóna á hilluna fyrr í dag og hafa margir af bestu knattspyrnumönnum enska boltans sent honum kveðjur á samfélagsmiðlum.

Eden Hazard hefur verið besti leikmaður Chelsea undanfarin ár og var beðinn um að tala um samband sitt við Joe Cole á Twitter aðgangi Chelsea eftir að hann tilkynnti ákvörðun sína.

„Ég talaði við hann áður en ég skrifaði undir hjá Chelsea. Hann sagði mér á hverjum degi að Chelsea væri besta félagið fyrir mig," sagði Hazard.

„Hann sagði að þetta væri stórt félag þar sem maður getur unnið titil á hverju tímabili. Það er ástæðan fyrir því að ég skrifaði undir, þakka þér fyrir Joe Cole!"

Cole er 37 ára gamall og lék fyrir West Ham, Lille, Liverpool, Aston Villa, Coventry City og Tampa Bay Rowdies á góðum ferli sem litaðist þó af meiðslum. Hann lék ýmist sem kantmaður eða sóknartengiliður og skoraði 10 mörk í 56 leikjum með Englandi.

Hazard og Cole léku saman hjá Lille og það var þar sem Cole sannfærði ungan Hazard um að skipta yfir til Chelsea fyrir 32 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner