Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 13. nóvember 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Skutlaði sér löngu eftir að boltinn fór út af
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Costel Pantilimon átti athyglisverð tilþrif í leik í Championship deildinni á dögunum.

Rúmeninn hefur á ferli sínum meðal annars spilað með Manchester City, Sunderland og Waford.

Í dag er þessi hávaxni markvörður á mála hjá Nottingham Forest og þar átti hann einkennileg tilþrif í leik á dögunum.

Eftir darraðdans á teignum fór boltinn aftur fyrir endamörk. Pantilimon tók þá sprettinn og skutlaði sér, þrátt fyrir að boltinn væri löngu farinn.

Myndband af þessu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner