Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. nóvember 2021 09:05
Elvar Geir Magnússon
Argentína á barmi þess að tryggja sér HM sæti
Angel Di Maria fagnar sigurmarkinu gegn Úrúgvæ.
Angel Di Maria fagnar sigurmarkinu gegn Úrúgvæ.
Mynd: EPA
Argentína er á barmi þess að tryggja sér sæti á HM í Katar eftir 1-0 sigur gegn Úrúgvæ.

Angel Di Maria skoraði sigurmarkið og er Argentína nú í öðru sæti í Suður-Ameríkudeild undankeppninnar.

Argentína mætir Brasilíu á þriðjudag en Brassarnir eru þegar komnir með farseðilinn á HM eftir sigur gegn Kólumbíu.

Sigur Argentínu gegn Úrúgvæ hefði getað orðið mun stærri en liðið fór illa með mörg góð færi.

Perú fagnaði einnig sigri í nótt en liðið vann öruggan 3-0 sigur gegn Bólivíu í Líma.
Athugasemdir
banner
banner
banner