Dimitrije Cokic hefur framlengt samning sinn við Ægi frá Þorlákshöfn og því er ljóst að hann mun spila með liðinu í sumar í 2. deildinni.
Dimi, eins og hann er kallaður, spilaði stórt hlutverk hjá Ægi í sumar en liðið hafnaði í 2. sæti í þriðju deildinni og mun því spila í annari deild næsta sumar.
Dimi spilaði 23 leiki á síðasta sumri og gerði tvö mörk fyrir þá gulklæddu.
Hér fyrir neðan má sjá tilkynningu frá félaginu.
Gleðifréttir inn í helgina!💛🖤
— Ægir FC (@fc_gir) November 12, 2021
Dimi hefur framlengt við okkur um eitt ár og tekur því þátt í 2. deildinni með okkur næsta sumar🤩
Dimi spilaði lykilhlutverk í árangri liðsins í sumar, spilaði 23 leiki, skoraði tvö mörk og hljóp svona 5000km!#fotboltinet @AstriPodcast pic.twitter.com/Q6WDMOHjBy
Athugasemdir