Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. nóvember 2021 13:10
Aksentije Milisic
Dortmund vill fá Ziyech í glugganum
Mynd: EPA
Borussia Dortmund hefur áhuga á að fá Hakim Ziyech, leikmann Chelsea, á láni í janúar glugganum næstkomandi.

Ziyech kom til Chelsea frá Ajax árið 2020 fyrir 38 milljónir punda en hann hefur síðan þá einungis byrjað 17 leiki í ensku úrvaldeildinni og þá fjóra á þessari leiktíð.

Samkvæmt blaðinu Bild, þá vill Dortmund fá leikmanninn í sínar raðir en það virðist fátt stefna í það að hann fá að spila regulega fyrir Lundúnarliðið.

Dortmund er sem stendur í öðru sæti þýsku deildainnar, fjórum stigum á eftir Bayern Munchen en liðið munu mætast innbyrðis þann 4. desembern næstkomandi.

Ziyech var mikið meiddur á sínu fyrsta tímabili með Chelsea og síðan þá hefur honum gengið illa að komast í takt við hlutina hjá þeim bláklæddu.
Athugasemdir
banner
banner
banner