Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. nóvember 2021 11:05
Aksentije Milisic
Emily Armstrong áfram í Haukum
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Emily Armstrong, 28 ára gamall markvörður Hauka í Lengjudeild kvenna, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.

Armstrong kemur frá Bandaríkjunum en hún lék hér á landi árið 2018 með ÍBV í Vestmannaeyjum. Þá hefur hún einnig leikið í Svíþjóð, Bandaríkjunum og í Noregi.

Armstrong lék alla leikina í Lengjudeildinni á síðasta tímabili með Haukum en þá hafnaði liðið í fimmta sæti deildarinnar. Hér fyrir neðan má sjá tilkynninguna frá Haukum.


Athugasemdir
banner
banner