Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 13. nóvember 2021 15:42
Aksentije Milisic
England: Arsenal jafnaði í uppbótartíma í erkifjendaslagnum
watermark
Mynd: Getty Images
Tottenham 1-0 Arsenal
1-0 Rachel Louise Williams ('65)
1-1 Vivianne Miedema (90+1)

Arsenal og Tottenham áttust við í nágrannaslag í ensku deildinni í kvennaflokki í dag en leikið var á The Hive leikvangnum í London.

Báðum liðum hefur vegnað vel á þessu tímabili en Arsenal er í efsta sæti deildarinnar á meðan erkifjendur þeirra eru í öðru sætinu.

Rachel Louise Williams gerði fyrsta mark leiksins en það kom á 65. mínútunni. Vivianne Miedema sá hins vegar til þess að Arsenal færi ekki tómhent úr þessum leik. Hún jafnaði í uppbótartímanum.

Eftir sjö umferðir er Arsenal í efsta sæti deildarinnar með 19 stig en Tottenham er í þriðja sætinu, fjórum stigum á eftir Arsenal.

Chelsea, Brighton og Manchester United eru í pakkanum en þau lið eiga öll leik inni á Tottenham og Arsenal.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner