Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. nóvember 2021 15:20
Aksentije Milisic
Gary McAllister aðstoðar Gerrard hjá Villa
Mynd: Getty Images
Gary McAllister, fyrrverandi leikmaður Liverpool, mun vera aðstoðarmaður Steven Gerrard hjá Aston Villa.

Gerrard tók við liðinu af Dean Smith á dögunum og nú er ljóst að McAllister mun vera Gerrard til halds og traust.

McAllister lék með Liverpool á árunum 2000-2002 en hann var í teymi Gerrard hjá Rangers. McAllister hefur áður þjálfað hjá Aston Villa en þá var hann aðstoðarþjálfari Gerard Houlier árið 2010.

Gerrard gerði góða hluti með Rangers bæði í Skotlandi og í Evrópukeppni. Hann vann deildina og tókst að stöðva Celtic en Rangers hafði ekki unnið deildina í tíu ár.

Gerrard og McAllister bíður nú það verkefni að koma Villa upp töfluna en liðið er sem stendur í 16. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá falli.
Athugasemdir
banner
banner
banner