Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. nóvember 2021 11:50
Aksentije Milisic
„Liverpool á að reyna við Haaland"
Mynd: EPA
Steve McManaman, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að sitt gamla félagið eigi að reyna kaupa Erling Braut Haaland, sóknarmaninn eftirsótta sem spilar með Dortmund.

Haaland, sem hefur mikið verið orðaður við flest öll stórlið, getur yfirgefið Dortmund næsta sumar fyrir einungis 64 milljónir punda en hann er með klásúlu í samningi sínum.

Mcmanaman segir að Liverpool eigi að nýta sér þetta tækifæri og reyna við Haaland strax í janúar glugganum.

„Ef Liverpool á pening þá verður félagið strax að reyna við Haaland, hann er búinn að sanna sig og það mun borga sig í framtíðinni að fá hann núna," sagði þessi gamla Liverpool hetja.

Áhugavert verður að sjá hvert næsta skref hjá þessum öfluga Norðmanni verður en ljóst er að hart verður barist um undirskrift hans.
Athugasemdir
banner
banner