Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. nóvember 2021 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óttar Magnús tryggði Siena þrjú stig
Óttar Magnús Karlsson
Óttar Magnús Karlsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslendingar voru í eldlínunni í evrópuboltanum í kvöld.

Óttar Magnús Karlsson hefur ekki spilað mikið með Siena í Serie C á Ítalíu. Hann kom inná þegar um 10 mínútur voru eftir í leik gegn Olbia í dag og gerði sér lítið fyrir og skoraði úrslitamarkið á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. 3-2 lokatölur.

Andrea Thorisdóttir var í byrjunarlið Kalmar í næst efstu deild í Svíþjóð er liðið tapaði óvænt gegn Sundsvall í markaleik. Kalmar er í 2. sæti en Sundsvall er í 12. sæti. Leiknum lauk með 4-3 sigri Sundsvall.

Barbára Sól Gísladóttir byrjaði á bekknum hjá Bröndby í Dannmörku í 1-0 sigri gegn Nordsjælland en kom inná strax á 27. mínútu.
Athugasemdir
banner