Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 13. nóvember 2021 09:40
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin þrjú sem U21 landsliðið skoraði í gær
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska U21 landsliðið vann 3-0 útisigur gegn Liechtenstein í undankeppni EM í gær en öll mörkin komu í fyrri hálfleik.

Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði fyrsta mark leiksins og lagði síðan upp annað mark á bróður sinn Ágúst Eðvald. Fyrirliðinn Brynjólfur Willumsson skoraði þriðja mark Íslands með frábæru skoti.

Sjáðu mörkin þrjú hér að neðan

Íslenska liðið heldur nú til Grikklands og leikur gegn heimamönnum á þriðjudaginn. Ísland er með sjö stig eftir fjóra leiki, einu stigi á eftir Grikkjum sem eru í öðru sæti riðilsins.

U21: Liechtenstein 0 - 3 Ísland
0-1 Kristian Nökkvi Hlynsson ('15)
0-2 Ágúst Eðvald Hlynsson ('25)
0-3 Brynjólfur Willumsson (f) ('31)
Skoðaðu textalýsingu frá leiknum



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner