Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. nóvember 2021 13:50
Aksentije Milisic
Tottenham bætist í kapphlaupið um Vlahovic
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur bæst við í kapphlaupið um serbneska framherjann Dusan Vlahovic en Antonio Conte er sagður hafa mikinn áhuga á leikmanninum.

Vlahovic hefur verið frábær í treyju Fiorentina og skorað mörk eins og óður maður. Þá hefur hann einnig verið að tikka inn mörkum fyrir serbneska landsliðið en hann hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning í Flórens.

Manchester City og Arsenal vilja einnig fá þennan 21 árs gamla leikmann en hann skoraði 21 mark í Serie A á síðata tímabili.

Tottenham vill fá leikmann strax í janúar glugganum en óljóst er hvort það takist. Samningur hans við Fiorentina rennur út árið 2023 en stuðningsmenn liðsins eru ekki sáttir með Serbann af því hann vill ekki framlengja samning sinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner