Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. nóvember 2021 12:10
Aksentije Milisic
Xavi vill fá Thiago aftur til Barca
Í treyju Börsunga.
Í treyju Börsunga.
Mynd: Getty Images
Xavi, nýr þjálfari Barcelona, er sagður vera mikill aðdáandi síns gamla liðsfélaga, Thiago, en hann ku vilja fá leikmaninn heim til Barcelona.

Thiago steig fram á sjónarsviðið hjá Barcelona á sínum tíma en þar lék hann 100 leiki fyrir félagið og skoraði ellefu mörk. Hann spilaði með Xavi á árunum 2009-2013 áður en hann fór til Bayern Munchen.

Xavi hefur rætt við Joan Laporta, forseta félagins, um að fá Thiago aftur til liðsins frá Liverpool en eins og áður segir er Xavi mikill aðdáandi leikmannsins.

Þessi þrítugi miðjumaður hefur einungis spilað sjö leiki á þessari leiktíð með Liverpool en hann hefur átt við meiðsli að stríða en sneri aftur til baka í 3-2 tapinu gegn West Ham í síðustu umferð.

Thiago kom til Liverpool í september mánuði árið 2020 og hefur hann spilað 37 leiki fyrir liðið og skorað eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner