Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon eru báðir í liði vikunnar í Meistaradeildinni hjá whoscored.com.
Arnór og Hörður hjálpuðu CSKA Moskvu að vinna Real Madrid 3-0 á útivelli í gær en spænska stórliðið hefur aldrei tapað svo stórt á heimavelli í Meistaradeildinni.
Hinn 19 ára gamli Arnór skoraði og lagði upp mark og hann er á miðjunni í liði vikunnar með James Milner leikmanni Liverpool.
CSKA á samtals fjóra leikmenn í liði vikunnar Igor Akinfeev er í markinu og Nikola Vlasic er frammi. Stórstjörnur eins og Leroy Sane og Kylian Mbappe eru einnig í liðinu.
Sjá einnig:
Arnór Sig: Leikmenn Real tóku ekki einu sinni í höndina á okkur
Sane is the only Man City player in a @pfc_cska dominated team of the week following their 3-0 win at Real Madrid
— WhoScored.com (@WhoScored) December 13, 2018
Igor Akinfeev@trentaa98@HordurM34@nsuele25@grimaldo35
Hakim Ziyech
Arnor Sigurdsson@JamesMilner@LeroySane19
Nikola Vlasic@KMbappehttps://t.co/z2YUS3pDIM pic.twitter.com/CzuaWIxmK9
Athugasemdir