Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 13. desember 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Merson: Vandræðalegt ef Man Utd sækir ekki á Anfield
Hvað gerir Manchester United á Anfield á sunnudaginn?
Hvað gerir Manchester United á Anfield á sunnudaginn?
Mynd: Getty Images
Paul Merson, séfræðingur Sky, segir að það verði vandræðalegt ef Manchester United reynir ekki að sækja af krafti í leiknum gegn erkifjendunum í Liverpool á sunnudag.

Sextán stig skilja liðin að fyrir leikinn en í síðustu tveimur viðureignum á Anfield hefur markalaust jafntefli verið niðurstaðan í bragðdaufum leikjum.

„Taktískt séð er Mourinho einn af þeim bestu. Þeir verða að ná sigri þarna því bilið á milli er að verða fáránlegt," sagði Merson.

„Mourinho gæti neyðst til að sækja gegn Liverpool, sérstaklega þar sem Arsenal, Spurs og Chelsea eiga öll þægilega leiki um helgina. Þetta gæti farið í tveggja stafa bil frá topp fjórum og það eru of mörg stig."

„Liverpool hefur öllu að tapa. Pressan er á þeim núna. Ef þeir ná að vinna þá er það annar leikur sem þeir geta strokað út af listanum hjá sér."

„Ég held að þeir reyni að setja Liverpool undir pressu því þeir eru undir pressu. Þeir eru á toppnum í deildinni. Það er vandræðalegt ef þeir reyna ekki að sækja. Þetta er Manchester United. Að fara þangað og loka sjoppunni væri grín."

„Þeir verða að skora því ég get ekki séð að þessi vörn United sé nægilega góð til að halda hreinu. Þeir rúlluðu yfir Fulham en leyfðu þeim samt að skora. Sókn er besta vörnin."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner