Daníel Hafsteinsson, leikmaður KA, heldur út til Danmerkur á næstu dögum þar sem að hann mun æfa með SønderjyskE.
Þetta staðfesti Sævar Pétursson, framkvæmdarstjóri KA, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Þetta staðfesti Sævar Pétursson, framkvæmdarstjóri KA, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Daníel lék stjórt hlutverk í liði KA á síðasta tímabili en hann spilaði tuttugu leiki fyrir liðið í Pepsi-deildinni. Hann skoraði í þeim þrjú mörk.
Daníel á að baki nokkra leiki fyrir yngri landslið Íslands en hann hefur verið í leikmannahópi U21 árs landsliðsins í síðustu verkefnum liðsins.
Eggert Gunnþór Jónsson leikur með SønderjyskE en liðið situr í ellefta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar þegar tímabilið er hálfnað. Liðið er nýbúið að skipta um þjálfara.
Athugasemdir