Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 14. janúar 2019 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar: Weah getur orðið einn af þeim bestu
Mynd: Getty Images
Timothy Weah, sonur goðsagnarinnar og forseta Líberíu George Weah, var lánaður frá PSG til Celtic á dögunum.

Neymar er liðsfélagi Weah hjá PSG og hefur miklar mætur á ungstirninu. Framherjinn verður 19 ára í febrúar en er samt búinn að spila 8 landsleiki fyrir Bandaríkin.

„Þetta er mjög spennandi tími fyrir hann. Miðað við það sem ég hef séð þá hefur Tim allt sem þarf til að verða einn af bestu sóknarmönnum heims," sagði Neymar við Daily Record.

„Þessi félagaskipti eru góð fyrir alla. Celtic fær hágæða leikmann, Tim fær spilatíma og PSG fær að sjá ungan leikmann sinn þróast.

„Hann gat valið á milli margra félaga en valdi það rétta. Celtic er stórt félag sem spilar skemmtilegan sóknarbolta enda eru þeir besta liðið í sinni deild. Liðið er ennþá í Evrópukeppni og það er frábært fyrir Tim."

Athugasemdir
banner
banner