Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. janúar 2022 21:25
Victor Pálsson
Traore verið með samningstilboð á borðinu í 15 mánuði
Mynd: Getty Images
Adama Traore, leikmaður Wolves, er reglulega orðaður við önnur félög og gæti verið á förum í janúarglugganum.

Traore á aðeins 18 mánuði eftir af samningi sínum á Molineaux og hefur ekki viljað skrifa undir í meira en ár.

Það segir blaðamaðurinn Dharmesh Seth hjá Sky Sports en Tottenham ku hafa mikinn áhuga á að semja við vængmanninn.

Traore hefur staðið til boða að skrifa undir nýjan samning í langan tíma en hefur enn ekki viljað krota á pappírinn.

„Wolves vill halda honum og það er samningstilboð á borðinu. Því miður þá hefur þetta tilboð verið á borðinu í 15 mánuði," sagði Seth.

„Það er enn ekki búið að skrifa undir og það er ekki frábært merki fyrir Wolves."

Seth bætir við að Wolves gæti fengið í kringum 20 milljónir punda fyrir spænska landsliðsmanninn.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner