banner
   lau 14. janúar 2023 16:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Akanji: Fyrra markið var djók
Mynd: EPA

Manuel Akanji, varnarmaður Manchester City var allt annað en sáttur með fyrra mark Manchester United en City menn vildu fá rangstöðu á Marcus Rashford.


Hann var í viðtali hjá BBC þar sem hann sagði að þetta hafi verið algjört djók.

„Fyrir mér var fyrra markið djók. Ég sé að Rashford er augljóslega rangstæður. Hann hleypur fram á síðustu sekúndu með boltann fyrir framan sig og stoppar ekki fyrr en Bruno kallar á hann," sagði Akanji.

„Ég átta mig á því að hann snertir ekki boltann en hann hleypur einhverja þrjátíu metra til að elta boltann. Fyrir mér er þetta augljós rangstaða. Þegar þetta var útskýrt í upphafi tímabils var ég viss um að þetta væri rangstaða."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner