Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 14. janúar 2023 11:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti: Ronaldo tók rétta ákvörðun
Mynd: EPA

Real Madrid er statt í Sádí Arabíu um þessar mundir þar sem liðið leikur í spænska Ofurbikarnum.


Liðið mætir Barcelona á morgun í úrslitum en Real vann Valencia í undanúrslitum á miðvikudaginn. Barcelona vann Real Betis í undanúrslitum.

Cristiano Ronaldo fyrrum leikmaður Real leikur í Sádí Arabíu en margir hafa gagnrýnt ákvörðun hans að fara þangað.

Carlo Ancelotti stjóri Real Madrid styður hann hins vegar.

„Ronaldo er mjög mótíveraður. Hann kann vel við staðinn og landið. Hann er mjög mótíveraður og tók rétta ákvörðun," sagði Acelotti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner