Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Adana Demirspor í annað sinn á tímabilinu í tyrknesku deildinni er liðið vann 3-1 sigur á Ankaragucu í dag en hann nýtti tækifærið vel og lagði upp mark í leiknum.
Landsliðsmaðurinn hefur fengið fá tækifæri á þessu tímabili og aðallega komið inn af bekknum.
Hann hefur þó fengið að byrja í bikarnum en í dag fékk hann sjaldgæft tækifæri í deildinni og greip það tækifæri.
Birkir lagði upp fyrsta mark Adana fyrir Yusuf Sari á 49. mínútu og átti góðan leik áður en honum var skipt af velli tólf mínútum fyrir leikslok.
Adana er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti og situr nú í 4. sæti með 33 stig.
Stig gegn meisturunum
Blikinn, Alfons Sampsted, var í vörn Twente sem gerði markalaust jafntefli við hollenska meistaraliðið Ajax.
Alfons kom til Twente um áramótin og hefur byrjað alla leiki liðsins síðan.
Hann nældi sér í spjald snemma leiks gegn Ajax og var síðan skipt af velli þegar tæpur hálftími var eftir. Twente er í 5. sæti með 31 stig.
Hjörtur Hermannsson var í liði Pisa sem tapaði fyrir Cittadella, 2-1, í B-deildinni á Ítalíu. Hjörtur fór af velli tólf mínútum áður en flautað var til leiksloka. Pisa er í 5. sæti með 29 stig.
Hólmbert Aron Friðjónsson fékk þá mínútur með þýska B-deildarliðinu Holsten Kiel sem var að spila sinn síðasta æfingaleik fyrir seinni hluta tímabilsins. Hann lék 22 mínútur en liðið spilaði 2x 60 mínútur gegn Arminia Bielefeld.
Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði belgíska liðsins Lommel sem tapaði fyrir Köln, 5-0, í æfingaleik í dag. Aron Elís Þrándarson lék hálfleik í 1-0 sigiri á Næstved í fyrsta æfingaleik liðsins á þessu ári.
Athugasemdir