Viðburðaríkum degi í ensku úrvalsdeildinni lýkur með leik Brentford og Bournemouth sem hefst kl 17:30.
Ivan Toney er kominn aftur inn í byrjunarlið Brentford eftir að hafa misst af sigri liðsins gegn Liverpool í síðustu umferð vegna meiðsla.
Það vekur athygli að Rico Henry er ekki í leikmannahópnum og Zanka missir sætið sitt í liðinu.
Neto er kominn aftur í markið hjá Bournemouth en það er áfall fyrir liðið að Dominic Solanke er fjarverandi.
Brentford: Raya, Ajer, Mee, Pinnock, Janelt, Jensen, Norgaard, Dasilva, Wissa, Mbeumo, Toney.
Bournemouth: Neto, Cook, Kelly, Mepham, Stacey, Senesi, Lerma, Billing, Christie, Anthony, Moore.
Athugasemdir