Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. janúar 2023 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Danjuma í Lundúnum - Fékk leyfi frá Villarreal til að ræða við önnur félög
Arnaut Danjuma
Arnaut Danjuma
Mynd: Getty Images
Hollenski vængmaðurinn Arnaut Danjuma hefur fengið leyfi frá Villarreal til að ræða við önnur félag en hann er nú mættur til Lundúna þar sem framtíðin verður ákveðin.

Þessi 25 ára gamli leikmaður var einn af bestu mönnum Villarreal er liðið komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð en hann hefur ekki verið í sama lykilhlutverki á þessu tímabili.

Hann hefur nú fengið leyfi til að ræða við önnur félög og er því mættur til Lundúna að ákveða næstu skref.

Mörg félög í ensku úrvalsdeildinni eru í myndinni en Everton er talið leiða baráttuna.

Danjuma fer væntanlega á láni út tímabilið með möguleika á að gera skiptin varanleg í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner