Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. janúar 2023 12:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Zerbi segir að svona komi upp allsstaðar - „Vil að hann komi aftur"
Mynd: EPA

Leandro Trossard vill fara frá Brighton eftir að hafa lent í riflildi við Roberto de Zerbi stjóra liðsins.


De Zerbi er ekki hrifinn af viðbrögðum Trossard og segir að svona riflildi komi upp allsstaðar.

„Það er alltof mikil athygli á einhverju sem gerist venjulega í klefanum hjá öllum liðum í heiminum. Ég var einu sinni leikmaður og lenti oft í svona veseni og mögulega verða samböndin sterkari eftir svona," sagði De Zerbi.

„Ég veit ekki hvort eitthvað hafi breyst fyrir eða eftir HM. Ég vil að hann komi aftur og verði mikilvægur fyrir okkur en það er ekki á minni ábyrgð. Ég get ekki hjálpað honum. Sá eini sem getur breytt þessu er hann sjálfur."


Athugasemdir
banner
banner
banner