Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. janúar 2023 17:26
Brynjar Ingi Erluson
Evra stráir salti í sár Man City-manna
Patrice Evra í leik með Man Utd
Patrice Evra í leik með Man Utd
Mynd: Getty Images
Manchester-borg er rauð eftir sigur 2-1 Manchester United á Manchester City á Old Trafford en ef það er einhver sem elskar það þá er það Patrice Evra.

Frakkinn, sem spilaði með United frá 2006 til 2014, nýtur sín best þegar United gengur vel en hann nuddar salti í sár stuðningsmanna Manchester City og þá sérstaklega Liam Gallagher úr Oasis.

Gallagher-bræður, sem eru jafnframt stofnendur Oasis hljómsveitarinnar, eru harðir Man City menn, en Evra ákvað að endurskrifa lag þeirra í Instagram-myndbandi sem hann birti í dag.

Þar syngur hann lagið Don't look back in anger en er aðeins búinn að breyta textanum. Þá skartaði hann hárkollu sem svipar til þeirrar hárgreiðslu sem bræðurnir hafa skartað síðustu áratugi.

Evra skaut aðeins á þá með myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan. Hann elskar þennan leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner