Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. janúar 2023 11:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola: Stuðningsmenn City geta ekki kvartað
Mynd: Getty Images

Ilkay Gundogan miðjumaður Manchester City sagði eftir tap liðsins gegn Southampton í enska deildabikarnum í vikunni að hungrið í leikmannahópnum væri farið að minnka.


Pep Guardiola var spurður út í þau ummæli á fréttamannafundi fyrir Manchester slaginn í dag.

„Stuðningsmenn City geta ekki kvartað undan því sem þetta lið getur gert, hefur gert og mun gera. Ég get ekki talað fyrir alla stuðningsmenn því það eru milljónir manna, ég get ekki hugsað út í það," sagði Guardiola.

„Að því sögðu þá kom þetta tap mér ekki á óvart. Við reyndum að koma í veg fyrir það en því miður gerðist það og vonandi kemur það ekki fyrir aftur."

Aðspurður hvort hann hefði áhyggjur af hungri leikmanna fyrir stórleikinn sagði hann einfaldlega: „Nei, ég hef ekki áhyggjur."


Athugasemdir
banner
banner