Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 14. janúar 2023 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Kjarnafæðismótið: KA labbaði yfir Völsung í síðari hálfleik
Andri Fannar skoraði fyrsta mark KA
Andri Fannar skoraði fyrsta mark KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur 0 - 4 KA
0-1 Andri Fannar Stefánsson ('64 )
0-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('65 )
0-3 Árni Fjalar Óskarsson ('81, sjálfsmark )
0-4 Ásgeir Sigurgeirsson ('89

KA vann þriðja leik sinn í Kjarnafæðismótinu í ár er liðið gjörsigraði Völsung, 4-0, í Boganum í dag.

Eftir markalausan fyrri hálfleik gengu gulklæddir á lagið og skoruðu fjögur mörk.

Andri Fannar Stefánsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson skoruðu með mínútu millibili þegar tæpur hálftími var eftir og þá kom Árni Fjalar Óskarsson boltanum í eigið net þegar níu mínútur voru eftir.

Ásgeir Sigurgeirsson rak síðan síðasta naglann í kistu Völsungs undir lok leiks.

KA hefur unnið alla þrjá leiki sína í riðli 1 í A-deild og er með markatöluna 18:0. Völsungur er á meðan í 3. sæti með 1 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner