Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 14. janúar 2023 13:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Reykjavíkurmótið: Pétur Bjarna skoraði í sigri Fylkis á KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir 2-0 KR
Mörk Fylkis:  Pétur Bjarnason og Óskar Borgþórsson.


Keppni hófst í Reykjavíkurmótinu í morgun þegar Fylkir og KR mættust í A-riðli.

Leikurinn fór fram í Árbænum en heimamenn fóru með 2-0 sigur af hólmi.

Fyrra mark leiksins kom strax á þriðju mínútu og staðan 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Síðara markið kom ekki fyrr en í uppbótartíma.

Pétur Bjarnason kom til Fylkis frá Vestra í vetur en hann skoraði annað marka liðsins.

Víkingur og ÍR mætast á Víkingsvelli kl. 14 í sama riðli.


Athugasemdir
banner
banner
banner