Brighton og Liverpool eigast nú við á AmEx vellinum í Brighton en heimamenn eru með ótrúlega yfirburði.
Kaoru Mitoma leikmaður Brighton olli miklum usla í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta færin og Liverpool komst hvorki lönd né strönd og átti ekki skot á ramman í fyrri hálfleik.
Strax í upphafi síðari hálfleik fékk Joel Matip pressu á sig sem varð til þess að Liverpool missti boltann og Mitoma komst í góða stöðu og sendi á Solly March sem skoraði.
March var aftur á ferðinni aðeins fimm mínútum síðar þegar hann tvöfaldaði forystu Brighton með glæsilegu marki.
Nú þegar rúmur klukkutími er liðinn hefur Jurgen Klopp fengið nóg og undirbýr fjórfalda breytingu.
Mörkin má sjá hér og seinna markið fyrir neðan.
Solly March 2nd Goal pic.twitter.com/P7h7ggFGaH
— Skirk. (@SkirkFTBL) January 14, 2023