Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 14. janúar 2023 15:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þungavigtarbikarinn: Patrik með tvö í sigri Blika
Mynd: blikar.is

HK 1-4 Breiðablik
Mark HK: Hassan Jalloh
Mörk Blika: Patrik Johanesen x2 og Tómas Orri Róbertsson x2


Það var grannaslagur í Þungaviktarbikarnum í dag þegar HK fékk Breiðablik í heimsókn.

Breiðablik valtaði yfir Stjörnuna í fyrsta leik A-riðils og gat tryggt sér toppsætið í riðlinum með sigri í dag.

Hassan Jalloh kom HK yfir í fyrri hálfleik en það var eina markið áður en flautað var til hálfleiks.

Óskar Hrafn Þorvaldsson gerði níu breytingar í hálfleik. Færeyingurinn Patrik Johanesen kom inn á en hann skoraði tvö mörk og hinn ungi Tómas Orri Róbertsson kom einnig inn á og skoraði einnig tvö mörk.

4-1 sigur Breiðabliks staðreynd.


Athugasemdir
banner
banner
banner