Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. febrúar 2018 09:52
Magnús Már Einarsson
Hólmfríður ólétt - Ekki með KR í sumar
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útlit er fyrir að Hólmfríður Magnúsdóttir verði ekkert með KR í Pepsi-deildinni í sumar en hún ber barn undir belti. Hólmfríður greinir frá þessu á Instagram síðu sinni.

Hólmfríður hefur skorað 37 mörk í 112 landsleikjum á ferlinum en hún spilaði tvo leiki á EM í Hollandi í fyrra.

Hin 33 ára gamla Hólmfríður spilaði með uppeldisfélagi sínu KR síðastliðið sumar eftir að hafa leikið með Avaldsnes í Noregi í fjögur ár þar á undan.

Á ferli sínum hefur Hólmfríður einnig verið á mála hjá Fortuna Hjörring í Danmörku, Kristianstad í Svíþjóð og Philadelphia Independence í Bandaríkjunum.

Fleiri landsliðskonur eiga von á barni á næstu mánuðum en Dagný Brynjarsdóttir, Elísa Viðarsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir eru allar óléttar.


Athugasemdir
banner
banner
banner