Lionel Messi skemmti sér vel á æfingu Barcelona í gær.
Messi er af mörgum talinn besti fótboltamaður sögunnar en Argentínumaðurinn mætir Íslandi á HM í sumar.
Hann hefur farið illa með marga af andstæðingum sínum í gegnum tíðina. Í gær fór hann hins vegar illa með nokkra af liðsfélögum sínum á æfingasvæði Barcelona.

Barcelona birti myndband af þessu á samfélagsmiðlum sínum.
Messi hefur farið fyrir liði Barcelona í vetur og hefur skorað 27 mörk í 36 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Barcelona er þá að spila frábærlega og er með gott forskot á toppi La Liga.
Myndbandið af Messi er hér að neðan.
Athugasemdir