Portúgalinn magnaði skoraði sitt 100. mark fyrir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu þegar hann jafnaði gegn Paris Saint-Germain í kvöld.
Þegar þessi orð eru skrifuð er hálfleikur og staðan 1-1.
Mark Ronaldo kom af vítapunktinum, Alphonse Areola fór í rétt horn en skotið var of fast fyrir hann.
Þegar þessi orð eru skrifuð er hálfleikur og staðan 1-1.
Mark Ronaldo kom af vítapunktinum, Alphonse Areola fór í rétt horn en skotið var of fast fyrir hann.
Cristiano Ronaldo er fyrsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar til að skora 100 mörk fyrir sama félagið. Hann er markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar með 115 mörk en hin mörkin gerði hann með Manchester United.
Þrátt fyrir að Ronaldo hafi ekki náð að sýna sínar bestu hliðar í La Liga á þessu tímabili er hann kominn með tíu mörk í sjö Meistaradeildarleikjum á tímabilinu. Hann hefur skorað í öllum leikjum sem hann hefur spilað í keppninni þennan veturinn.
Cristiano Ronaldo in the Champions League for Real Madrid:
— Football__Tweet (@Football__Tweet) February 14, 2018
🇪🇸 Games: 95
⚽️ Goals: 100
BEST. IN. THE. WORLD. 🐐 pic.twitter.com/a3EWitZcN8
Athugasemdir