Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 14. febrúar 2019 18:30
Arnar Helgi Magnússon
Courtois: Yrði frábært að fá Hazard til Real
Eden Hazard og Thibaut Courtois
Eden Hazard og Thibaut Courtois
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, vonar að Eden Hazard feti í fótspor sín og komi til Real Madrid í sumar.

Hazard gaf það út á dögunum að hann væri búinn að ákveða hvert næsta skref á ferli hans verður. Hann hefur undanfarna mánuði verið orðaður við Real Madrid.

„Það yrði frábært ef hann myndi koma, ég get svosem ekki tjáð mig mikið um það, sagði Courtois við sjónvarpsstöðina VTM Nieuws eftir Meistaradeildarleikinn í gær.

„Þetta er ákvörðun sem að hann tekur og Real að sjálfsögðu líka. Eden er frábær leikmaður og góður vinur minn. Það yrði gaman að fá hann hingað en þetta er ekki í mínum höndum."

Courtois var spurður að því hvort að hann hafi rætt þessi mögulegu félagsskipti við Hazard.

„Nei, það hef ég ekki gert. Við hlægjum af því að við séum góðir saman (hjá belgíska landsliðinu) en það er ekkert sem að tengist þessu,"
Athugasemdir
banner
banner