Ólíklegt að Lovren spili gegn Bayern
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir ólíklegt að Dejan Lovren nái að jafna sig í tæka tíð fyrir leikinn gegn Bayern Munchen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar næstkomandi þriðjudag.
Lovren hefur verið frá keppni í rúman mánuð vegna meiðsla aftan í læri. Virgil van Dijk er í leikbanni gegn Bayern og Joe Gomez er einnig meiddur.
Lovren hefur verið frá keppni í rúman mánuð vegna meiðsla aftan í læri. Virgil van Dijk er í leikbanni gegn Bayern og Joe Gomez er einnig meiddur.
Möguleiki er á að miðjumaðurinn Fabinho verði því við hlið Joel Matip í hjarta varnarinnar gegn Bayern. Klopp er í það minnsta ekki alltof bjartsýnn á að Lovren nái sér í tæka tíð.
„Ég vil ekki útiloka það en við getum ekki reiknað með því," sagði Klopp en lið Liverpool kemur aftur til Englands um helgina eftir æfingaferð á Spáni. Lovren fór ekki með í þá ferð vegna meiðslanna.
„Ef Dejan gefur merki á mánudaginn og segir 'Mér líður frábærlega' þá hugsum við þetta upp á nýtt. Í augnablikinu erum við að undirbúa leikinn og í þeim undirbúningi er Dejan ekki með. Við þurfum að finna aðrar lausnir."
Athugasemdir